|
|
|
|
|
14.2.03 takið þátt í spurninga"keppni" um sjálfan mig hér: Take my Quiz on QuizYourFriends.com! Bj�rgvin skráði þetta klukkan 2/14/2003
12.2.03 jæja, allir að taka þátt í nýju lubbakönnuninni :) Bj�rgvin skráði þetta klukkan 2/12/2003
Bj�rgvin skráði þetta klukkan 2/12/2003
10.2.03 alveg er þetta búin að vera skelfilegir síðustu dagar. á föstudaginn bakkaði ég á bíl (sem var ólöglega lagt) og þarf líklegast að borga eitthvað fyrir það, það kviknaði í rúmi í menntaskólanum (og reykskynjarinn varð gagnlegur eftir öll þessi ár) lús fannst í hárum nemenda, nauðgun var kærð (viðkvæmt má sem ég ætla alls ekki að segja frá, ekki mitt mál) og ég lenti svo í árekstri í morgun við ruslatrukkinn (enda fáránleg helvítis hálka og mjór vegur (tjarnarlönd) og hallandi þar að auki og ekkert sem hægt var að gera) þannig að ég hef sjálfsagt ekki efni á neinu næsta mánuðinn!! þetta væri svo sem í lagi ef ég ætti bílinn en nei, mamma á hann víst. ef ég væri heimskur kani myndi ég sjálfsagt fara í mál við bæjaryfirvöld að hafa ekki saltað veginn en ég er bara heimskur íslendingur þannig að ég sleppi því. ballið var samt ágætt en svo djammaði ég líka á laugardaginn og samdi ljóð og setti inná huga.is og gleymdi þessu síðan. á sunnudaginn kíkti ég á huga og viti menn, ég fékk stórgóða dóma fyrir þetta fyllerísljóð. kíkið á það! stjörnuleikur nba var leikinn í nótt og horfði ég hann ásamt bergvini og jökli en leikurinn var tvíframlengdur og er það í fyrsta skiptið í sögunni sem það gerist. jordan var nú ekki neitt sérstakur en átti þó góða spretti annað slagið. kevin garnett hins vegar fór á kostum og skoraði 37 stig! nú fer að líða að því að ég komi með nýja könnun, áhorfið hefur minnkað gríðarlega. lifið heil og passið ykkur á helv#$"$%$%$ hálkunni. ps. trúið þér mér núna að við finnur erum þeir óheppnustu í heimi?? Bj�rgvin skráði þetta klukkan 2/10/2003
|
||||
|
|
|
|
|