|
|
|
|
|
19.3.04 til hamingju stríðsaðdáendur! í dag er ár liðið frá því að innrás var gerð í írak. síðan hermenn bandamanna réðust óvelkomnir (auðvitað) með sprengjugný og hávaða hefur mikið blóð runnið til sjávar. hér og hér eru nokkrar fallegar myndir úr stríðinu og ættu að gleðja alla velunnara stríðsins. í tilefni dagsins hef ég samið ljóð í hækuformi en það er japanskt og er 5 - 7 - 5 (línurnar) myndir úr stríði rósin lét undan þungbærum skugga drekans skýjin dökknuðu þessa dimmu nótt flæddi blóðið rúbinrautt augun fylltust sorg heimskir stjórna þeir sem öllu virðast ráða með kolsvört hjörtu sturlunin algjör tilgangsleysið ríkjandi glataðar sálir feður og mæður syrgja sundurtætt börnin sem hylja grundir olían flæðir loks yfir bakka sína í átt til vesturs örninn sköllótti hreykinn flýgur fugla hæst með blóðugan gogg krossfestur jésús vonlaus snýr krossinum við hið illa sigrar Bj�rgvin skráði þetta klukkan 3/19/2004
17.3.04 johnny depp kærastinn minn?? það segir netið mér og ekki vil ég mótmæla því, hann er mjög sætur maður hann nonni minn. veit samt ekki með mömmu mína.... og en pabbi minn er jafnvel fyndnari en alvöru pabbi minn... nei annars, pabbi er fyndnari... :) Bj�rgvin skráði þetta klukkan 3/17/2004
blautir steinhnullungar = sleipir steinhnullungar? svarið við þessari litlu spurningu er já en ég komst einmitt að þessu í dag í vinnunni þegar ég steig á fallegan steinhnullung og flaug laglega á hausinn. með þessu falli lauk 2 vikna tímabili þar sem ég hafði ekki dottið neitt á vappi mínu um egilsstaðabæ. að því tilefni er ég hér með smá ljóðagetraun. bólu-hjálmar samdi eitt sinn vísu þegar hann flaug á hausinn í hálku, svona byrjar vísan : hæg er leið til helvítis er hallar undan fæti spurningin er, hvernig er seinniparturinn? verðlaunin eru vegleg að vanda en vinningshafinn hlýtur fría áfyllingu á gosi á veitingastaðnum chi chi chang bang í honk kong. Bj�rgvin skráði þetta klukkan 3/17/2004
15.3.04 góð helgi liðin fór á ball á laugard. og skemmti mér frábærlega, hef ekki dansað svona mikið síðan í falklandsstríðinu! fyrir dansi lék hljómsveitin síkáta í röngum götum (a.k.a. í svörtum fötum) og voru alveg stórskemmtilegir á sviðinu. ég dansaði við hvurn minn fingur við fjöldan allan af gellum og ég verð að viðurkenna að ég átti mína kossaspretti við unga yngismær sem óþarfi er að nefna hér á öldum netvakans. sjaldan eða aldrei hafa verið eins mikið af stórskemmtilegum slagsmálum og á þessu balli en 3 fóru á sjúkrahús og einn í fangelsi, nokkuð góður árangur það. sigurvegari ballsins var enginn annar en athafnaskáldið davíð freyr jónsson og hlýtur hann smurkopp frá o. johnsen og kober að launum. helgin í heildina fær 4 stjörnur af 5. Bj�rgvin skráði þetta klukkan 3/15/2004
|
||||
|
|
|
|
|